Óli og Ester
26.10.2006 21:26:47 / ester

Nýtt blogg

hæhæ! jæja þá erum við komin aftur út og lífið að komast í fastar skorður fyrir veturinn. Af því tilefni erum við búin að stofna nýtt blogg undir http://oliogester.bloggar.is -kannski við reynum þá að vera aðeins duglegri við þetta ;)
En sem sagt bara allt gott að frétta og Óli búin að skrifa færslu á nýja bloggið, þannig að endilega kíkja þangað!
Bestu kveðjur,
Ester

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2006 12:53:29 / ester

sumarið

Sælinú!

Þetta er þá helst í fréttum:


-Ég er komin inn í ISAD (http://www.isad.it) þar sem ég er að fara að læra innanhúss arkitektúr Á ÍTÖLSKU! :| Þetta er mjög lítill skóli, kennir bara innanhúss arkitektúr og það eru bara ca. 25 manns sem byrja á hverju ári. Ég þarf reyndar að taka 2 strætóa í skólann, en þetta er samt ekki svo löng leið...ég verð eldsnögg að fara þetta þegar við verðum búin að kaupa vespu! :haha: Óli heldur svo bara áfram að gera það gott á öðru árinu í IED.

En um sumarið er þetta að segja:

-Fyrst og fremst varð ég náttúrulega frænka í sumar!!! Litlu krílin fæddust 24. júlí og fengu nöfnin María Katrín og Elvar Ágúst (í höfuðið á Óla náttúrulega...) ;). Þau eru algjörir englar og fallegustu börn í heimi. Það er kominn linkur inná barnalandssíðuna þeirra hér til hliðar.

-Sumarbústaðarferðin með stelpunum var bara snilldin ein og verður klárlega gerð að árvissum viðburði!

-Ég fór í heimsókn til Óla í Leirársveitina og fékk að veiða pínu...við veiddum ekkert smá flottan lax alveg 10 pund eða eitthvað!! :haha:

-Eftir það er ég svo lítið búin að sjá af stráknum, því að hann er nánast búinn að vera að veiða út í eitt síðan hann hætti að gæda!

-Svo eru náttúrulega búnar að vera grillveislur, sólböð og pallakaffi eins og fylgir sumrinu, sem var alveg ótrúlega gott hérna fyrir norðan...allavega það sem ég sá af því út um gluggann á KEA ;)

-Óli átti stórleik í íslensku kung fu myndinni Öskrandi api, ballett í leynum sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni þann 6. september.

 Og þetta er næst á dagskrá:

-Planið er svo að fara í sumarbústað um næstu helgi og taka á því með öllum sem þekkja okkur áður en við förum aftur út, en það verður 9. okt...og hver veit nema þetta blogg fari þá eitthvað að taka við sér! ;) skráning í ferðina fer fram í comments! :haha:

blessogtakk


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 16:17:42 / ester

sömmertæm

EEhemm...fannst ég bara einhvernveginn þurfa að ræskja mig, það er svo langt síðan eitthvað hefur verið skrifað hér!

Það er nú ekki búinn að vera neinn rosalegur hasar í lífi okkar þessa dagana...ég er bara hérna á KEA að vinna og hafa það skemmtilegt með lobbununm mínum og óli er að brillera í skólanum sem er nú bara hætt að teljast til tíðinda. ég kíkti nú samt í æðislega heimsókn til hans 3. jún og var í heila 9 daga!!! það var náttúrulega ekkert smá gaman að hitta hann aftur eftir allan þennan tíma, vorum samt ekkert feimin eða neitt.:P fyrstu dagana vorum við bara inni í mílanó, fórum í gaðinn okkar og hydroscalo sem er annar mun stærri garður ekki langt frá okkur. við fórum einmitt þangað fyrsta daginn. þar er svaka fínt vatn og bara baðstrandastemming...allir að grilla og svona kósý! við hittum bigga og guðbjörgu þar og strákarnir skelltu sér á vatna-bretta dæmi eitthvað á meðan við guðbjörg sleiktum sólina.
það var svo bara æðislegt veður allann tímann og við vorum bara eitthvað að spóka okkur í sólinni í bænum og hafa það gott!

Fjölskyldan hans óla var svo búin að leigja sér svaka hús í toscana héraði, ekki langt frá flórens og voru allir að fara að hittast þar 10. júní. Við vorum svo heppin að frænkur hans tvær og fjölskyldur þeirra áttu leið hjá mílanó á leiðinni þangað niðureftir og tóku okkur með. það var alveg frábært!!! við vorum sem sagt þarna eitthvað um 15 manns og þetta var bara langt uppí fjöllunum langt frá öllum öðrum...sundlaug, blakvöllur og ég veit ekki hvað og hvað!! þar var náttúrulega bara legið í sólbaði þennan eina heila dag sem ég var þarna, enda vorum við óli í æsispennandi brúnkukeppni sem ég vann svo auðvitað með yfirburðum! ;) Á kvöldin var svo ekta ítölsk fjölskyldustemming...allir saman við langborð úti á veröndinni, grillaður matur og rauðvín...og svo fóru allir kallarnir inn að horfa á HM!!
þann 12. vöknuðum við óli, mamma hans og pabbi og helgi svo eldsnemma og keyrðum til Flórens. þar náðum við að rölta aðeins um áður en það þurfti að skila mér á lestarstöðina. ég hefði nú helst viljað taka óla með mér :$...en það er nú farið að styttast í að hann komi heim. svo var ég sem sagt bara ein að ferðast allan daginn. með lestinni til mílan, rútu á flugvöllinn og þaðan sem betur fer í beinu flugi heim! sísí tók svo á móti mér á umferðarmiðstöðinni og eftir að hafa raskað svefnró allra íbúa mávahlíðarinnar :haha: kom hún mér loksins í ró í góða góða rúminu hennar önnu minnar!

Annars er það svona helst á döfinni að við pæjurnar erum að fara í sumarbústað núna um næstu helgi á bifröst og verður það án efa einn af toppum sumarsins!!:D ég er nú bara ekki búin að hitta einhverjar þeirra síðan um jólin, þannig að það verða miklir fagnaðarfundir...og umræðuefnin örugglega nóg til að endast okkur í fleiri ár! planið er náttúrulega bara að sötra rauðvín allann daginn og liggja í pottinum á milli þess sem við borðum á okkur gat (að hætti danska kúrsins að sjálfsögðu) ;)
Svo bíða bara allir spenntir eftir litlu tvíburunum þeirra dúnnu og andra! það fer að styttast í þá og þeir eru nú þegar orðnir svaka sprækir og skemmtilegir!

Hef þetta ekki lengra í bili, en skrifa nú kannski eitthvað og set inn myndir eftir bústaðaferðina.

Hafiði það gott!










» 5 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 22:10:48 / ester

belgía london ísland

Heihei hóhó...mikið voru nú allir hissa þegar við mættum óboðin til íslands þann 9. apríl!! Við ákváðum sem sagt nokkru fyrr að fara í heimsókn til indriða og jóhönnu, vina okkar í belgíu, í páskafríinu og í framhaldi af því var náttúrulega ekki vit í öðru en að kíkja heim á klakann...í framhaldi af því var svo ákveðið að ég myndi ekkert fara út eftur eftir páskafrí af því að þá var hvort sem er svo stutt í að ég ætlaði að byrja að vinna á KEA...þannig setti óli þetta allavega upp fyrir mig! Djóók! :haha: þannig að þetta blogg er skrifað í tölvunni hjá mömmu og pabba á akureyri.

Við áttum sem sagt flug til Brussel eldsnemma að morgni föstudagsins 7. apríl. Óli skipulagði þetta allt saman í þaula, en einhvernveginn endaði þetta samt á því að við misstum af flugvélinni :S (munaði sko mjög mjóu) og máttu fara heim aftur og náðum svo næstu vél sem fór um kvöldið...een við allavega komumst til þeirra á endanum og það var alveg hreint rosalega gaman þó að við náðum að stoppa stutt. þau búa í litlum bæ (man ekki einu sinni hvað hann heitir :$ ) svolítið frá brussel og við vorum þar bara að hafa það huggulegt í þennann eina heila dag sem við höfðum af því að við fórum svo með lestinni til london á sun. og þaðan til íslands.

En allavega, þá vissi sem sagt enginn nema daði, sem náði í okku og helgi, bróðir hans óla, að við værum að koma og það var sko ekkert smá gaman að sjá svipinn á liðinu!! :klikk: Við lentum reyndar seint um kvöld, þannig að allir voru farnir uppí rúm heima hjá óla og við þurftum að dingla...en vá hvað þau voru hissa á þessu öllu saman!!! Skildu hvorki upp né niður! Við vorum svo í rvk. að dúlla okkur fram á mið. (og það var mjööög erfitt að hringja ekki bara í mömmu og pabba og segja þeim allt sman) og fórum þá með m&p óla til akureyrar. Þar var pabbi einn heima alveg grandalaus og hálfsofandi yfir sjónvarpinu kallinn þegar okkur bara að garði! En hann var sko lang fyndnastur!! Ég æddi náttúrulega bara inn og hann vissi sko ekki neitt...fölnaði bara allur upp þangað til hann varð næstum því eins og pappírspési í framan! :klikk: mér var nú hætt að vera sama þegar hann var búinn að stara á mig í hálfa mín eða eitthvað og varð bara hrædd um hann...en hann áttaði sig nú kallinn og fattaði loksins að þetta vorum bara við! ;)

Það var nú ýmislegt brallað á akureyri...óli var reyndar mestann tímann í fjallinu, en ég fór bara einu sinni..á skíði!!! Ég var nebbla ekki enn búin að jafna mig í rassinum eftir síðustu brettaferð og ætlaði nú ekki að fara að gera illt verra! En þetta er samt allt að koma núna...ég er farin að viðurkenna að kannski hafi ég ekki verið brotin! ;) en það voru nú líka nokkur partýin og eins og ein góð sjallaferð með stelpunum mínum! Æðislegt alveg að hitta þær aftur!:haha:

En nú er hann óli minn bara farinn frá mér og ég sé hann ekki aftur fyrr en (vonandi) í byrjun júní. :( Hann fór til london núna á mánudaginn og átti svo að fara til mílan á þriðjudaginn en öllum flugum var víst frestað þannig að hann var bara að komast heim í dag eftir miklar hremmingar í london sem hann segir ykkur nú vonandi betur frá! ;)

Ég byrjaði hins vegar að vinna í gær og er í svona smá aðlögun núna fyrstu vikuna, enda mikið að læra! en mér lýst bara ekkert smá vel á þetta! alveg hreint frábærar stelpur að vinna þarna sem hafa óþrjótandi þvolinmæði við að segja mér til og kenna mér inn á allt! Maður er soddann kjúlli í þessu! :$

En jæja..það er best að fara að tala við strákinn á skype! :haha:
Bless og takk,
froðusnakk!


» 17 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 11:20:03 / oli

Nýjar myndir

Myndirnar komnar inn...

www.flickr.com/photos/oliogester/

Linkur neðst vinstra megin á síðunni.
Verði ykkur af því.

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 10:16:08 / ester

bloggidíblogg

Æi...eruði ekki bara hætt að vera hissa á þessu!? Við erum greinilega ekkert betri bloggarar en þetta! ...en allavega þá er mikið búið að vera að gera síðan síðast! Punktaformið kemur sér þá vel! ;)

* Við skruppum uppí alpana hérna einn laugardaginn, 25.mars. Fórum með Bigga og Guðbjörgu, Sverri og Sigurrós, Benna og Kidda og tveimur norskum vinum hans Bigga. Þetta var hin skemmtilegasta ferð í alla staði, frááábært veður og glampandi sólskin. Við fórum á þremur bílum og vorum reyndar ekki mætt fyrr en upp úr hádegi en náðum hálfum degi á brettunum...já, á brettunum!!! Þetta var sem sagt fyrsta skiptið hjá mér, Benna og Kidda og kepptumst við við að detta hvert um annað þvert! Ég gekk nú meira að segja svo langt að ég dró alltaf einhvern með mér í fallinu. Maður var nú samt orðinn helvíti góður í lok dags...farinn að geta beigt í aðra áttina og svona! ;) ég meiddi mig nú samt alveg rosalega í rassinum af ölum dettíngnum og get enn varla setið og alls ekki legið á bakinu! En það var svo gama að við erum að hugsa um að fara aftur núna á fimmtudaginn...ég ætla þá að reyna að læra að beygja í hina áttina!

*Ég er svo bara búin að vera í skólanum og að passa litlu rassgötin. Þau eru búin að fá sér lítinn hvolp, þannig að það er aldeilis stuð á heimilinu núna!! Hundurinn gjörsamlega veit ekkert hvernig hann á að vera og sprænir út um öll gólf, er búin að éta a.m.k. eitt skópar frá hverjum fjölskyldumeðlimi og er að gera allt kolvitlaust...enda bauðst mamman til að gefa mér hann þegar ég kom til þeirra um daginn! Sem betur fer gat ég borið við ofnæminu í óla, annars sæti ég uppi með dýrið!!

*Það var próf hjá mér síðasta miðvikudag...var að klára 5. stigið takkfyrirtakk! Gekk bara mjög vel...fék svona níu að meðaltali úr báðum prófunum og bara góð með mig! Óli er hins vegar líka búinn að vera að brillera í skólanum! Hann er ekki búinn að fá neina einkunn undir 26 (8,7) sem var einu sinna en annars er hann búin að fá þrisvar 27 (9,0) tvisvar 28 (9,3) og einu sinni 30+ (10+) þannig að ég er bara mjög ánægð með strákinn minn! :)

*Alli vinur okkar, muniði sem er að læra söng hérna fyrir utan mílan, kom svo í heimsókn til okkar á fimmtudaginn og lá leiðin á mezzoforte tónleika á jazz klúbb hérna í bænum. Við komumst af þessu fyrir tilviljun og urðum náttúrulega að kíkja á strákana! Fórum með Benna og Systu, mömmu hans sem er mikill aðdáandi og kom beint af flugvellinum og Sólrún slóst líka í hópinn og stóð fyrir heljarinnar landkynningu með íslenskum ópalskotum á meðan á tónleikunum stóð! :) en þeir voru allavega ekkert smá góðir! Ég vissi nottla ekki neitt um þetta band fyrir tónleikana, enda ekkert mikið inní djazzheiminum..en svona fyrir sísí og möggu, þá voru þetta einmitt svona tónleikar með klappi alltaf inní miðjum lögum þannig að maður vissi ekkert hvað var að gerast! ;) en ítalarnir voru allavega líka að fíla þá vel og vissu alveg hvenær þeir áttu að klappa!:)

* Á laugardagskvöldið núna buðum við svo Bigga, Guðbjörgu og Rabba (sem var í heimsókn hjá þeim) og Benna og mömmu hans (sem var líka í heimsókn) í mat. Það var bara ekkert smá gaman og kokkurinn stóð sig hreint með afbrigðum vel! ;) við þurftum nú að fá lanaða stóla hérna í næstu íbúðum og eins og einn disk og hnífapör, en það er alveg magnað hvað er hægt að koma mörgum fyrir hérna! En á matseðlinum var hinn klassíski mangólax með grilluðum furuhnetum með tilheyrandi meðlæti og sló hann hreinlega í gegn!

* Það er ekki hægt að segja annað en að að sé komið sannkallað sumarveður hérna í mílan!!! 8) Þetta er svona veður sem er bara einn dag á egilsstöðum í ágúst!! Við lágum bara í sólbaði hérna útí garði í allan gærdag...fengum okkur ís og svona! Alveg yndislegt og rosalega rómó! ;)

Jæja...þá er nóg komið í bili! Ég ætla að reyna að fá óla til að fara að setja inn myndir af brettaferðinni, tónleikunum og einhverju skemmtilegu! Ég nenni ekki að leggja það á mig að læra þetta! ;)

A presto ragazzi!

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 13:10:04 / ester

langimangi

jahérn…voðalega er maður eitthvað lélegur í þessu! en það er allavega nóg búið að vera að gerast hjá okkur…held bara að þetta verði að vera í punktatali svo ég gleymi ekki einhverju.

*á föstudaginn fyrir 2 vikum þá kíktum við á sýningu hérna í borginni (í geðveikt stóru höllinni þar sem við fórum líka á sýninguna um daginn) sem hét “expobagno” og var sem sagt svona sýning á allskonar baðdóti og (að við héldum) líka eldhúsdóti, innréttingum og svona. biggi og guðbjörg fóru með okkur og eftir að hafa skoðað heilmikið af athyglisverðum rörum og kælikerfum, :| gáfumst við upp og duttum í bjórinn! Fórum svo bara beint heim til b&g og borðuðum saman og höfðum það gott.

*laugardaginn eftir það fórum við í mat til ernu og lindu, en ég eyddi mestum hluta dagsins í að reyna að finna allt sem þurfti til að búa til spínatpastað sem ég fór með…reyndi að finna eitthver afleysingarefni fyrir sýrðan rjóma :S (sem mér hefur ekki ennþá tekist að finna hérna) og fullt af öðru drasli úr uppskriftinni sem reyndist bara ekki hægt að finna hérna í stórborginni…annaðhvort það eða ítalskan mín er bara svona léleg! en útkoman var allavega ansi áhugaverð og hef ég stelpurnar grunaðar um að hafa borðað þetta einungis til að gleðja mig! en fajitasið þeirra heppnaðist allavega mjög vel, þannig að allt var þetta bara mjög skemmtilegt.

*jájá…svo var það bara gott kommbakk í skólann! er núna komin í mjög sprækan bekk, þar sem meirihlutinn af nemendunum þegir ekki, sem er bara afar hressandi tilbreyting frá hinum feymnu bekkjunum mínum. við erum líka bara 8 þegar mest er þannig að þetta er mjög þægilegt og skemmtilegt.

*sama dag og ég byrjaði í skólanum byrjaði ég líka að passa þrjá ítalska krakka! þau eru bara voða fín. ein stelpa, lucrezia sem er 4 ára og algjör principessa...svolítið frek stundum svona ;) og tveir strákar, leonardo og federico sem eru 7 og 8 ára og ágætir bara. þetta er svona smá snobb família, mamma er heimavinnandi en er samt með þrennt fólk í vinnu hjá sér:!: það er ein kona sem er alltaf þarna að taka til og þvo og strauja og allt og hún eldar líka kvöldmat fyrir þau á hverjum degi!!! pabbinn býr ekki hjá þeim...skil þetta ekki alveg, en þau eru víst ekki skilin samt, en hann kemur og borðar með þeim á hverju kvöldi. en þetta er bara mjög skemmtilegt...ég er hjá þeim svona 3 eftirmiddaga í viku í c.a. 3 tíma sem er alveg feykinóg! fyrsta daginn var ég að kenna federico að teikna eitthvað...náttúrulega alveg mitt svið! en svo bað hann mig að kenna sér að teikna hest!!! hans leit nú mun betur út en minn sem var ein og ofvaxinn hamstur á stultum...:$

*svo var höddi náttúrulega hjá okkur hérna í viku og það var margt skemmtilegt gert! á fös. kvöldið vorum við hérna uppí glugga að henda tómötum í kall sem stóð niðri...:haha: óóendanlega fyndið, hann vissi ekki neitt!! benni tók svo sýnikennslu í að prumpa á kveikjara sem var ekki síður fyndið, en mér fannst testósterónið vera orðið fullmikið þannig að ég fékk sólrúnu í stelpuliðið! kvöldið endaði svo þannig að höddi, sólrún og tvær lessur (eða það héldum við allavega) sem búa beint fyrir ofan okkur fóru á klúbb sem endaði nú ekki betur en þannig að blindfull önnur lessan fékk gat á hausinn og fór með sjúkrabíl uppá spítala þar sem höddi og hin lessan eyddu kvöldinu í hjólastólaleik!

*á lau. kvöldið var svo bekkjarpartý hjá bekkjarsystur óla sem býr hérna rétt hjá og það var svaka stuð..strákarnir tóku reyndar allhressilega landkynningu og náðu að hella alla blindfulla af ópalskotum! :D liðið var bara rúllandi um! hressandi! en við fórum nú bara snemma heim af því að við ætluðum á snjóbretti á sunnudagsmorguninn, en svo var svo vont veður hérna og mikið rok að það var allt lokað og við komumst ekki

en jæja...þetta er svona það helsta! vona bara að einhver hafi nennt að lesa þetta allt... :haha: 














» 13 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 20:07:50 / ester

júróvísjón og pakkasósa

ciao tutti! hvað segiði þá? :D ákvað að taka mér hérna smá pásu frá föndri til að segja ykkur sona það helsta!
ennþá er allt að verða kreisí í skólanum hjá óla og félögum, en það sér nú víst fyrir endann á því bráðlega. ég er bara búin að vera í fullri vinnu hjá honum í að skrifa, klippa og líma (sem ég er náttúrulega með próf í úr iðnskólanum) ;) ég er meira að segja svo góð í þessu að ég er búin að fá mér vinnu við þetta! Já, ég er sem sagt að fara að kenna þremur krökkum, 4, 7 og 8 ára að föndra tvisvar í viku og á víst líka að kenna þeim ensku. Þau búa hérna tiltölulega rétt hjá þannig að þetta er fínt, allavega svona með skólanum en ég er búin að ákveða að taka tvo mánuði í ítölskunni áður en ég fer til íslands að vinna í sumar.
fyrir ykkur sem ekki vissuð, þá er ég sem sagt að fara að vinna í lobbýinu á hótel kea á akureyri í sumar og byrja 15. maí...það verður gaman, ég hef enga trú á öðru og hlakka mikið til! :D annað sem er á planinu hjá mér í sumar er að strjúka bumbuna á henni dúnnu systur (ekki bara að því að mér finnst það gaman) af því að hún er með tvíbura í maganum sem við fáum að hitta í sumar!!!!!!:haha::haha:
Vá, hvað það er gaman og spennandi! ég hreinlega get ekki beðið...frekar en allir aðrir í fjölskyldunni. verður hressandi að fá tvo rauðhærða skæruliða! ;)

haldiði svo ekki að hann óli sé búinn að kaupa sér miða til aþenu 18. maí til að fylgjast með júróvísjon!!! 8) þau eru hérna nokkur af íslendingunum búin að kaup sér miða (flug og hótel) og einhverjir fleiri eru að spá í að fara, þannig að þetta verður smá hópferð og örugglega svaka stuð! en ég verð víst farin heim til íslands og byrjuð að vinna, þannig að ég fæ ekki að fara með! :(

hmm...held bara að það sé ekkert fleira merkilegt í fréttum. erum bara farin að hlakka til að fá hödda í heimsókn...kemur væntanlega færandi hendi með toro svepasósu...það er ekkert fyrir hvern sem er að gera sósu frá grunni!
a presto ragazzi!


» 17 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 22:56:53 / oli

Það er allt á huldu hér....

Jæja góðir gestir.

Það er skemmst frá því að segja að svefnsófinn var vígður um helgina, þar sem hann Alli vinur minn kom sá og sigraði. Hann fær að launum forláta tekrús og handbróderaðan snítiklút bæði að Marakóskum sið og óskum við honum innilega til hamingju með þetta greinilega erfiða verkefni.

Alli býr semsagt hérna í Breccia sem er rétt fyrir utan Milano og er að læra óperusöng. Hann er líka trúður, oft kallaður Alli trúður í höfuðið á föður hans sem er yfir trúður á AK. Alli er líka rosalega góður í að herma eftir Einari Manna KitKat í kindin Einar dansinum. Þökkum honum líka fyrir það.

Einnig kíkti Ágústa, vinkona okkar úr Iðnskólanum í heimsókn til okkar en hún býr í Róm. Gulli kom líka með en hann er í heimsókn hjá henni þannig að hann var í tvöfaldri heimsókn. Stebbi bróðir Ágústu og Ingibjörg konan hans komu líka frá Sviss samt ekki Miss. Á laugardagskvöldið fórum við öll saman á Marakóska staðinn og þið sem eruð skörp eruð núna búin að átta ykkur á því hvaðan vinningarnir í svefnsófahappdrættinu komu. Alls vorum við 15 manns þar sem að slatti af skólakrökkunum komu líka. Þegar leið á kvöldið og komið var að því að borga kom í ljós að tæknilegir örðuleikar höfðu átt sér stað við pöntunina á rauðvíninu. Það sem átti að vera vín hússins var að okkar mati RÁN hússins. Tókust upp mikil rifrildi og þurfti Ester meira að segja að setja fyrir sig ítölskuna og áttu þjónarnir lítið í hana.
Farið var heim í 35 fermetrana og hafði hver maður því rétt rúma 2 fm fyrir sig meðtalið sturtunni og skápum. Ég hélt mig mest inn á baði því það var frekar troðið inn í eldhúsi. Partýið stóð til 6 með viðeigandi gítarglamri og söngvum.

Annars er það að frétta að það er allt að verða vitlaust í skólanum og sé ég fram á svefnlausar nætur fram í byrjun apríl. En ekkert að því. Ester er að leita fyrir sér að vinnu og í dauðu tímunum sem eru nú ekki margir vegna Friends áhorfa hjálpar hún mér með verkefnin. Hún er svo góð við mig þessi elska.

Fyrsta heimsóknin til okkar er svo ákveðin og er það enginn annar en Höddi sem ætlar að leggja land undir fót þann 8 mars. Hann má eiga von á verðlaunum að Marakóskum sið við komuna.
Auglýsum svo bæði eftir fólki til að heimsækja okkur um páskana og einnig fólki til þess að vera í íbúðinni í sumar.

Yfir og út.

» 11 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 17:46:54 / ester

epli og hálf spritedós...

já, þar með er það upptalið sem ég náði að boða um helgin! 8| var sem sagt með æluna, ansi hreint hressandi! hún er að ganga hérna núna. við óli áttum einmitt formlegt eins árs afmæli á laugardaginn og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað það var rómantískt...haldið inni á baði!
en annars er nú bara allt gott að frétta hjá okkur. það er víst allt að verða kreisí í skólanum hjá óla og krökkunum og þau skiptast á að koma hérna í heimsókn og kvarta yfir því hvað það sé nú rosalega mikið að gera! ;) annars var ég að byrja á fimmta stigi í ítölskunáminu í dag!!! óóótrúlegt alveg hreint! en ég verð á því stigi núna út vikuna og eftir það er enn allt óráðið. ég er búin að vera á fullu að leita mér að vinnu þessa dagana. aðallega er ég að skoða au-pair síður en það starf er greinilega sannkölluð gullnáma!! það er hægt að vinna sér inn 50-75 evrur á viku!! (svona 4-7 þúsund keeeell) ;) en þetta er nú bara allt í vinnslu!
jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili! fariði nú að koma í heimsókn til okkar...svefnsófinn er að verða leiðinleg áminning um að við eigum enga vini! ;)

tanti bachi

» 7 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 19:41:55 / ester

Skíðaferðin ógurlega...

jæja görkins...þá er komið að rapporti (flott hjúkkuorð) :haha: úr skíðaferðinni okkar. hún hófst sem sagt á 5 tíma lestarferð, sem við eyddum allri í að horfa á lost í tölvunni og hefði þess vegna mátt vera lengri! en við mættum  beint í fimmtugsamælið hans óla (ekki míns sko) sem var haldið á bar þarna í meribel, bænum sem við bjuggum í og var alveg gríðarleg stemming á mannskapnum, eins og má glöggt sjá á myndnum! það var tekið ansi vel á því og má sega að jón þór hafi svo sannarlega tryllt líðinn með krabbadansinum eða the krab dance! ;)

mamma og pabbi hans óla og liðið sem var með þeim, samtals ca 25 manns voru öll saman í einu húsi, en við óli fengum herbergi í húsinu við hliðina á þeim og var innifalinn morgunmatur og kvöldmatur.

um morguninn, sem sagt á fimmtudeginum, eftir að ég og óli höfðum sporðrennt eins og 35 eggjum í morgunmat héldum við svo beint í fjallið. óli var ótrúlega lélegur á brettinu miðað við mig, sem þaut fram úr honum og skransaði yfir alla á fínu leiguskíðunum mínum! :haha: (Óli: right) hreint út sagt ótrúlegir taktar! eitthvað var formið nú samt lítið að gera sig og má segja að þreytan hafi dregið okkur í rúmið skammarlega snemma þetta kvöld...en því miður ekki fyrir kvöldmatinn sem var frekar slæmur og samanstóð af gráu gumsi einhverju í forrétt, soðnu svínakjöti með sítrónubragði og svo var þetta toppað með bread and butter pudding í eftirrétt. þess má geta að kokkurinn var breskur.

föstudeginum var svo líka eitt frá morgni til kvölds í fjallinu –með nokkrum bjórstoppum- og var ótrúlega gaman. um kvöldið gerðu svo nokkrir aðilar uppreisn gegn foreldrunum og skelltu sér á djammið þrátt fyrir þreytu og almennan slappleika...þess ber þó að geta að við óli vorum fjarri góðu gamni sökum fyrrnefnds líkamlegs ástands! 8|

á laugardeginum var svo veðrið ekkert sérstakt og lokað í margar lyftur þannig að það var dottið snemma í bjórinn, eða svona rétt eftir hádegi! um kvöldið var svo farið á diskótek þar sem óli, jón þór og kalli létu mann og annann finna fyrir því á dansgólfinu með ansi fyrirferðarmiklum keiludansi og sláttuvéladansi...en eftir það var fólk alveg hætt að þora nálægt okkur.

sunnudagurinn var svo tekinn snemma í fjallið en við lögðum svo af stað heim um 4 leytið. það varður þó að fylgja sögunni að snilld ferðarinnar var klárlega brynjan sem jenni skíðaði í ...en vonbrigði ferðarinnar voru hins vegar þau að það reyndi ekkert á hana (nema næstum því einu sinni þegar hann var að hökta uppí strætóskíli á skíðaklossunum) :haha:

þetta var sem sagt þessi æðislega ferð í mjög stuttu máli. það var svo ótrúlega gaman hjá okkur að við erum þegar byrjuð að plana að fara eitthvað á skíði um páskana og óskum hér með eftir einhverjum sem er til í að bjóða okkur! ;)

p.s. óli lofar að blogga næst og nýjar myndir eru komnar inn.

 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 11:30:30 / ester

Þá er komið að því!!!

hæhæ!

okkur langaði bara að blogga smá áður en við leggjumst í feðalög á eftir. það er nú samt frekar lítið búið að vera að gerast hérna síðustu dagana, óli bara búinn að vera að vinna í einhverjum verkefnum og ég búin að vera í skólanum. var frekar erfið þarna fyrsta vikan af því að það var liðin ein vik af námskeiðinu áður en ég byrjaði, en þetta er allt að koma núna...ég er meira að segja farin að hafa mikil samskipti við ítalska nágranna okkar sem kemur hérna reglulega til að fá lánuð ýmis eldhúsáhöld! :D

en síðasta helgi var samt annski skemmtileg. á fimmtudaginn fórum við á aperativo með íslendingunum sem eru ekki með óla í skólanum (sem sagt þessa sem við hittum í íslendingapartýinu fyrir jólin) og það var bara svaka stuð. á föstudagskvöldið kíktum við svo í heimsókn til sólrúnar og ísabellu sem býr með henni þar sem veitingarnar voru ekki af verri endanum...síríusrjómakúlur takk fyrir takk! :haha: snemma á laugardaginn (of snemma vildu sumir meina) fórum við á rosalega stóra hönnunarsýningu sem var hérna með ellu, sólrúnu og ernu, þar sem stórfyrirtækið ice-design group var stofnað. þetta var nebbla víst einhver fyrirtækjasýning þar sem hinn almenni borgari var ekki velkominn. :D en þetta var ekkert smá flott sýning...þó svo að við hefðum bara náð að skoða 1/3 af henni á þeim fimm tímum sem við vorum þarna!! ...svo var tekið á því á barnum um kvöldið þar sem óli tryllti lýðinn með hreint ótrúlegum töfrabrögðum...það eina var að við erum ekki enn búin að fnna megnið af peningunum sem honum tókst að láta hverfa.

Allavegna... erum að fara að leggja í hann. Þurfum fyrst aðeins að kíkja í bæinn og kippa með okkur ýmislegu nothæfu fyrir ferðina og svo bara beint upp á lestarstöð þar sem bíður okkar 5 og hálfs tíma lestarferð upp í frönsku alpana. Þar munu mótökurnar verða magnaðar þar sem við erum að fara að hitta hele familyen hans Óla og fullt af strákum sem við þekkjum sbr. Egggert, Jón Þór, Einar Carl og fleiri spræka tappa. Þetta verður hörkustuð.

Lofum að setja inn fullt af myndum úr ferðinni og af sýningunni þegar við komum til baka.

:Þangað til þá.... verið stress, ekkert hress, blessbless

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 12:43:40 / ester

skíðaferð og skemmtilegt

Jeminn hvað það er eitthvað mikil bloggleti í manni! En héðan er allavega bara allt gott að frétta. Fyrir ykkur sem ekki vissuð þá reyndar byrjaði ég ekki í skólanum fyrr en núna síðasta mánudag og var því í auka-jólafríi í viku eftir að við komum hingað heim...ekkert að því sko. Ég reyndar veit ekki alveg afhverju ég byrjaði ekki mánudaginn sem við komum, af því að ég byrjaði að tala á ítölsku við konurnar á skrifstofunni og skildi svo ekkert hvað þær voru að segja á móti! ...nú veit ég að mamma og pabbi eru að hugsa að ég hafi náttúrulega notað aukafríið mitt í eitthvað upbyggilegt og gagnlegt, eins og að fara að sækja um vinnur og svona...en það fór einhvernveginn í eitthvað allt annað! :)

en skólinn hjá mér núna er frá kl. 14-17.40 þannig að maður er nú sossum ekki að gera mikið annað á daginn en að vera í skólanum og læra. Óli er líka búinn að vera alveg svakaduglegur og er bara að brillera í skólanum, er bara alltaf hæstur í öllu strákurinn... ég er ekkert smá stolt af honum! :) það er alveg brjálað að gera hjá þeim núna og það er alltaf eitthvað lið hérna hjá honum að vinna í einhverjum hópverkefnum og bara svaka stuð. ein stelpa sem er hérna mikið með honum að vinna eitthvað verkefni heiti puk og er frá svíþjóð. Hún býr hérna á fyrstu hæðinni með 2 öðrum stelpum frá svíðjóð og hundinum sínum (þau sofa öll saman í einu svefnherbergi þannig að það er svolítið þröngt á þingi hjá þeim, þó að íbúðin sjálf sé nú eitthvað stærri en okkar). En allavega þá buðu þær okkur í mat í gærvöldi og það var ekkert smá næs...heimatilbúnir hamborgarar og svo daim og turkish pepper í eftirmat! :)

en um síðustu helgi þá kíktum við aðeins út á apperativo með ellu, benna og sólrúnu og þá sá ég að það er verið að auglýsa eftir fólki í vinnu á bar hérna rétt hinum megin við götuna...alveg hreint fínasti bar! Ég náttúrulega tók þetta sem tákn um að ég ætti að sækja um...og er búin að vera að hugsa um það síðan...fer nú að gera eitthvað í því, kannski bara á leiðinni heim úr skólanum í dag! :) en fyrir utan þetta er ekkert að gerast ennþá í vinnumálunum nema hvað ég er búin að finna e-mailið hjá íslenska gaurnum sem er hérna með iðnhönnunarfyrirtæki og er að fara að senda honum mail alveg á næstunni ;)

jájá...svo bara bíðum við spennt eftir helginni ekki núna heldur næstu, af því að þá erum við að fara að hitta mömmu og pabba hans óla og fullt af fleira skemmtilegu fólki í meribel í frönsku ölpunum!! :) það verður nú ekkert lítið fjör þar! Þó svo að ég sé nú ekkert búin að fara á skíði í mörg ár og geti ekki neitt...mér skilst að það sé allt í lagi. Ég og gunna verðum bara á barnum og höfum það skemmtilegt! ;p
svo er hún ágústa, vinkona okkar úr iðnskólanum, flutt hérna út til rómar og ætlar að fara að koma í helgarheimsókn til okkar bráðlega, þannig að það er allt skemtilegt að gerast!

jeminn, þetta er orðið allt of langt...ég ætla að fara að gera eitthvað að viti! Við förum nú að setja inn myndir og eitthvað skemmtilegt hérna bráðlega. En talandi um eitthvað skemmtilegt þá er hérna ýkt skemmtilegt próf sem þið verðið endilega að taka...hvað þekkiði mig vel, heheheh...góða skemmtun! :)

 

http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=060119060849-932600

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 17:29:08 / ester

jólafríið! :)

jæja já, þá er bara danmerkurferðin, jólin og áramótin búin og við komin aftur út (eða heim...maður veit aldrei hvað maður á að segja). en svo ég byrji nú að segja frá danmerkurferðinni þá var hún alveg yndisleg í alla staði!!! :haha: það var bara afslöppun og góður matur, búðarráp (sem pabbi var alveg hinn hressasti með), jólagjafakaup, bjórdrykkja og pulsuát að hætti danans, glögg og eplaskífur, kaffi COACH;) farið í tívolíið þar sem andri vann RISAstórann bangsa handa dúnnu sinni ;) og náttúruega strikið, fisketorvet, sívaliturninn og ekki má gleyma kongens nytorv þar sem ég var svikin um skautaferðina mína sökum fimbulkulda! 8|
já, þetta var danmerkurferðin í afar stuttu máli. það var náttúrulega ekkert smá gaman að hitta mömmu, pabba, dúnnu og andra aftur eftir allann þennan tíma og ekki laust við að ég sé strax farin að sakna þeirra!
en jæja, svo á sunnudeginum var bara haldið beint til akureyrar (skildum reyndar óla eftir í reykjavík, enda allir orðnir dauðleiðir á honum, DJÓK! :haha:. neinei...hann ætlaði náttúrulega bara að vera heima hjá sér um jólin með fjölskyldunni). svo tóku náttúrulega bara veisluhöldin við. það var tekið laufabrauð og ég og dúnna bökuðum tromptoppana góðu með dyggri aðstoð frá magga frænda, en ég hef aldrei séð neinn borða jafn mikið af þeim á jafn stuttum tíma og á hann hreinlega hrós skilið fyrir þá frammistöðu! :D svo kíkti ég á litlu krílin hennar möggu minnar nokkrum sinnum og ég er ekkert að ljúga því að þeir eru bara jafnvel sætari en á myndunum! engir smá draumaprinsar þar á ferð! ;)
þótt ótrúlegt megi virðast þá samanstanda þessi jól af einungis tveimur alvöru djömmum sem voru hefðinni samkvæmt  hjá sísí á annann í jólum og  gamlárs og það var ekkert smá gaman að djamma aftur með stelpunum mínum! við fórum í sjallann og vorum með elsta fólkinu á svæðinu (samt sætastar sko) og dönsuðum eins og við ættum lífið að leysa og ég og sísí náðum að troða okkur baksviðs með jónsa og félögum í svörtum fötum, en höfum ákveðið að ræða það ekkert frekar sökum vandræðalegrar uppákomu! :S svo var það náttúrulega ógleymanlegt pottapartý hjá önnu í milljón metrum á sekúndu og mér tókst svo að plata andra og óla (sem var fyrir norðan í einn dag) til að taka í trivial með mér...en sökum þess hvað það var farið að dragast á langinn var ákveðið að semja um jafntefli (ég vann óla samt sko) ;)
Við fengum svo far í bæinn með honum gunnari frænda hans óla á fimmtudaginn og á leiðinni held ég að hann hafi sagt okkur einum þrisvar sinnum söguna af því þegar hann var rændur í mílanó...sem við vorum þó bæði búin að heyra 63 sinnum áður! hehe...fínn kall! :D á föstudaginn var svo svaka afmælispartý hjá siggu sætu og fanney á hvebbanum þangað sem rjóminn af iðnskólaakademíunni mætti, þar á meðal pinký, sem var þó ekki búinn að fara í ljós í tilefni dagsins!:haha:
en heimferðin hófst svo á sun. með flugi til london en við þurftum að vera þar yfir eina nótt og við vorum svo heppin að fá gystingu hjá amöndu vinkonu okkar sem var einmitt líka á leiðinni "heim" til mílanó.
ég er ekki alveg tilbúin til að segja söguna af aðkomunni í frystihólfinu okkar sökum fýlunnar sem sest að í nösunum á mér við tilhugsunina...hún kemur kannski seinna!8|
en það er víst best að fara að gera eitthvað að viti!

bless og takk,
froðusnakk


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 01:45:19 / oli

Jólafrí

Hef tekið krítíska ákvörðun um að gera hlé á færslum í jólafríinu.

Óska  því öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Megi friður vera með yður.

Ljóss og friðar
Ólafur Ágúst Jensson
8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3